Unnið hörðum höndum að Helgabók

Nú hef ég verið búsett í Frakklandi í tvo mánuði og þrátt fyrir að það sé stuttur tími hefur margt áunnist. M.a. tók ég upp þráðinn þar sem frá var horfið í vinnu að bók um Helga Hallgrímsson náttúrufræðing; sögu hans og sýnisbók, og er verkið það langt komið að óhætt virðist að ákvarða að bókin komi út næsta vor, 2027.
Fyrir þá sem ekki vita, tók ég upp á því að gifta mig aftur, fimmtíu og níu ára gömul, frönskum manni sem ég kynntist fyrir fjörutíu árum í Reykjavík, í tengslum við leiðtogafund Gorbachevs og Reagans í Höfða í október 1986. Nú lifi ég góðu lífi í sveit í Suður-Frakklandi og uni mér ákaflega vel, laus við hið íslenska brauðstrit og bankalánahlekki. Nú lifi ég, og nú skrifa ég!

The Reykjavík Summit in 1986

The Reykjavík Summit was a summit meeting between U.S. President Ronald Reagan and General Secretary of the Communist Party of the Soviet Union Mikhail Gorbachev, held in Reykjavík, Iceland, on 11–12 October 1986.

ÁSTARSAGA (A Love Story) deals in a realistic way with the events in Reykjavík and their aftermath and is woven into a love story:
A French photographer and a young Icelandic woman fall madly in love. A classic story, yet completely unexpected during the backdrop of Cold War politics. Their passion ignited the weekend that Ronald Reagan, the President of the United States and Mikhail Gorbachev, the last leader of the Soviet Union, met at Höfði in Reykjavík, Iceland, in the fall of 1986.
It is the story of a wild romance, of that which could have been, a battle between the superpowers and how the meeting in Reykjavík changed the world and these lovers‘ lives. The ways in which this meeting created turmoil and turned life upside down in Reykjavik is shocking even forty years later. It was the time of corded landline phones and typewriters, restraints, predjudice and rigid nationalism, heightened by the Cold War and the race to the moon.
Their love story is a journey through time and shows how history repeats itself again and again.
A fascinating adventure by an acclaimed author of seven books of poetry and a creative non-fiction book, Manneskjusaga or A Girls Tale (as it has been translated to English), which was published in 2018 and received rave reviews.

Ástarsaga is available in most book-stores in Reykjavík and by the author; (pls. contact s.asmundsdottir<at>gmail.com).

Only available in Icelandic, but due for translation in English in 2025.

Ný bók í vinnslu

Nú er í vinnslu bók um náttúrufræðinginn Helga Hallgrímsson. Hún kemur út hjá Skruddu haustið 2025 ef allt gengur að óskum en í ár verður Helgi níræður. Skrudda hefur einmitt gefið út stórbækur Helga, svo sem; Lagarfljót, mesta vatnsfall Íslands; Sveppabókin, íslenskir sveppir og sveppafræði og Fljótsdæla, mannlíf og náttúrufar í Fljótsdalshreppi. Væntanleg er einnig næsta vor bók Helga um íslenskar háplöntur, einnig frá Skruddu. Fleiri bækur liggja eftir Helga, auk viðamikils safns vísindagreina og greina annars eðlis, sem birst hafa í fræðiritum, fjölmiðlum, tímaritum og víðar.
Bókin sem ég er að vinna að og gengur undir vinnuheitinu Helgakver, mun verða sýnisbók, til þess ætluð að gefa innsýn í ævistarf Helga Hallgrímssonar og hugðarefni hans gegnum tíðina, auk formála, æviágrips og ritaskrár.

Helgi Hallgrímsson. Ljósm. Steinunn Ásmundsdóttir.

NÝTT NAFN – SAMI VEFUR

Kæri lesandi.
Hugverkavefur minn og hugverkaútgáfa heita nú ORÐLIST og eru á vefslóðinni orðlist.is og ordlist.is.
Ég hef sumsé selt lén mitt Yrkir (stofnað 2016) í kjölfar þess að eftir því var falast, enda núorðið til yrki, yrkja, yrkjusjóður, yrkill, yrkið, yrkjur o.s.fr. og Yrkir minn því orðinn nokkuð innikróaður.

Velkomin á ORÐLIST!

Kær kveðja,
Steinunn

.

2024

NÝTT ÁR FER Í HÖND / nú þarf að æfa sig / á nýja ártalinu / yfirskrifa vöðvaminnið / hafa nýtt ár í huga / uns það verður ósjálfrátt / og smám saman hluti / af núliðinni framtíð / – og fortíð / er heldur ekki / lengur viss um að / taka beri / áramót / svo hátíðlega / sem kaflaskilum / jafnvel nýju upphafi / þetta er jú samfella / línuleg hliðræna / út í ginnungagapið / ártöl aðeins lítilsigldur / mælikvarði mannsins / í tilraun hans til að / hemja fallið

. . .

Ég kveð gamla árið með þakklæti í hjarta. Ljóðabókin Fuglamjólk kom út hjá Dimmu og var vel úr garði gerð eins og allt sem forleggjarinn þar á bæ snertir á. Mér sýnist hún hafa gengið þokkalega í sölu og ratað til sinna.

Ný ljóð birtast mér, koma alsköpuð eins og fuglar úr bláum himni ímyndunaraflsins og setjast á pappírinn. Þau bíða síns tíma; verða yfirfarin og endurbætt eins og gengur og kannski lenda þau einhvern tímann í bók. Það verður þá áttunda ljóðabókin sem ég sendi frá mér.
En nú ætla ég að vera róleg og safna í sarpinn. Önnur ritstörf eru í forgrunni að svo stöddu, ritun bókar um merkan náttúrufræðing og þar handan við skrif nýrrar skáldsögu, þeirrar þriðju.
Blaðamennskan tekur svo auðvitað sitt rými í sköpunarkraftinum.

Það lítur út fyrir að ég hafi orðið gervigreindarþýðingu að bráð. Dani nokkur þræddi sig gegnum Forlagið og til mín sl. haust og upplýsti að hann væri búinn að grófþýða Ástarsögu á dönsku. Þegar ég fékk að sjá hráskjal fyrstu umferðar þýðingarinnar brá mér nokkuð í brún og leitaði til afburða vandaðs þýðanda hér heima, Sigurlaugar Gunnarsdóttur sem m.a. hefur komið að forlaginu Bókstaf. Eftir lauslega skoðun lítur út fyrir að danskurinn hafi keyrt bókina gegnum gervigreindarþýðingu, þýðingarvitleysurnar eru svo augljósar.
Þetta er heldur leiðinlegt og ég bíð átekta um hvað gerist næst og mun leita lögfræðiaðstoðar hjá Rithöfundasambandinu ef slík þýðing fer í útgáfuferli. Meiri vitleysan!
Hafi aðrir lent í viðlíka mættu þeir senda mér línu á steinunnasm(hjá)gmail.com og lýsa reynslu sinni af slíku og lyktum þess.

!
Í veftrénu efst t.v. finnur þú bækur höfundar, óprentað efni, greinar, viðtöl ofl.

Upplestur á Dyngjuveginum

Ljóðakvöld Dimmu var haldið í Gunnarshúsi að Dyngjuvegi 8, miðvikudagskvöldið 16. nóvember 2023. Eins og þeir vita sem komið hafa í hús Rithöfundasambands Íslands eru þetta dásamleg húsakynni sem halda vel utan um viðburð af þessu tagi.

Við lásum upp úr nýjum bókum okkar: Gyrðir Elíasson – meistarinn sjálfur, Magnús Sigurðsson og forleggjari okkar Aðalsteinn Ásberg úr nýju stórbók Dimmu með verkum Edgars Allan Poe. Ég mætti að sjálfsögðu í hrafnakápunni minni sérstaklega af því tilefni.

Þetta var yndisleg stund með mörgum góðum gestum.

Ljósm. Ása Jónsdóttir.

Sýnisljóð úr Fuglamjólk

HÉR eru nokkur sýnisljóð úr nýju ljóðabókinni minni Fuglamjólk sem Dimma gaf út í október 2023.

Upplestrar úr Fuglamjólk eru á TikTok undir nafni höfundar og YRKIRljóð, á Facebook, Instagram og YouTube.

KAUPA Fuglamjólk:
Mér þætti vænt um ef þú vildir kaupa af mér eintak af Fuglamjólk!
Bókin er auðvitað tilvalin til gjafa (já, jólin nálgast!) og þeir sem kaupa 3 bækur eða fleiri fá vænan afslátt!

KAUPAUKI!
Í kaupbæti færðu eintak af ljóðabók minni Dísyrðum sem kom út hjá Goðorði 1992. Sjá hér.

KAUP:
Vinsamlega millifærðu kr. 5.500 á: kt. 010366-4969, bnr. 305-26-1169 og segðu mér hvort þú vilt persónulega áritun og aukabókina með.
3 bækur eða fleiri keyptar: pr. eintak á kr. 4.000
Samskipti í tölvupósti: steinunnasm<hjá>gmail.com eða í Messenger/PM.
Gefðu upp nafn og heimilisfang ef þú vilt fá bókina/bækurnar í pósti.

Fuglamjólk fæst í öllum helstu bókabúðum (vinir mínir fyrir austan fá hana í Húsi handanna og Bókakaffi), hjá forleggjaranum Dimmu og auðvitað árituð hjá höfundi.

Fuglamjólk fær góðar viðtökur

Nýja ljóðabókin mín Fuglamjólk hefur fengið góðar viðtökur lesenda og skv. Eymundsson-listanum virðist hún á ágætri siglingu sölulega líka. Fuglamjólk fæst í öllum helstu bókabúðum (vinir mínir fyrir austan fá hana í Húsi handanna og Bókakaffi), hjá forleggjaranum Dimmu og auðvitað árituð hjá höfundi.

Finna má upptökur af upplestrum mínum af ljóðunum úr Fuglamjólk á Facebook, Instagram og nú síðast á TikTok, þar undir nafninu YRKIRljóð.

Kaupa Fuglamjólk

Mér þætti vænt um ef þú vildir kaupa af mér eintak af Fuglamjólk!
Bókin er auðvitað tilvalin til gjafa (já, jólin nálgast!) og þeir sem kaupa 3 bækur eða fleiri fá vænan afslátt!

KAUPAUKI!
Í kaupbæti færðu eintak af ljóðabók minni Dísyrðum sem kom út hjá Goðorði 1992. Sjá hér.

KAUP:
Vinsamlega millifærðu kr. 5.500 á: kt. 010366-4969, bnr. 305-26-1169 og segðu mér hvort þú vilt persónulega áritun og aukabókina með.
3 bækur eða fleiri keyptar: pr. eintak á kr. 4.000
Samskipti í tölvupósti: steinunnasm<hjá>gmail.com eða í Messenger/PM.
Gefðu upp nafn og heimilisfang ef þú vilt fá bókina/bækurnar í pósti.

Fuglamjólk er einnig fáanleg í öllum helstu bókaverslunum
og hjá útgefandanum, Dimmu.

Fuglamjólk er komin út!


Ljóðabók mín Fuglamjólk er komin út hjá forlaginu Dimmu.

Formlegur útgáfudagur telst vera 12. október 2023.

Ljóðin eru skrifuð frá hausti 2019 til vors 2023.
Ljóðin eru 69 talsins og bókin 115 bls.

Ég er afskaplega sátt við ljóðabókina. Kápa er unnin skv. mínum hugmyndum að litum og formum og fallega úr garði gerð. Um innihald bókarinnar verða aðrir að dæma en þar kennir ýmissa grasa. Bláir litir og grænir koma oft fyrir í ljóðunum, himinninn er víða, fuglar eins og alltaf í mínum ljóðum, vatn, skógur, vor og haust. Ilmur og kuldi eiga sín stef og sömuleiðis lífsgötur.

Í kynningu segir:

Í sjöundu ljóðabók sinni heldur Steinunn Ásmundsdóttir uppteknum hætti og yrkir af næmleika og skilningi um líf og tíma, tengsl við náttúruna, ójöfnuð og firringu, en fyrst og fremst um manneskjuna sjálfa í flóknum vefnaði tilverunnar.

Um nafn bókarinnar er það að segja að þótt orðið fuglamjólk virðist framandi þá framleiða dúfur og flamingóar mjólk fyrir sitt ungviði. Nafnið kom þó til mín úr íslenskri þýðingu bókarinnar Tsjernobyl-bæninni: „Frá tímum Forn-Grikkja hefur orðið fuglamjólk verið notað yfir sjaldgæfar krásir af ýmsu tagi.“ Tsjernobyl-bænin, Framtíðarannáll, höf. Svetlana Aleksíevítsj, íslensk þýð. Gunnar Þorri Pétursson.

Fuglamjólk er til sölu í öllum helstu bókaverslunum, hjá forleggjara mínum Dimmu og hjá mér sjálfri auðvitað, árituð og með kaupauka, auk þess sem góður afsláttur fæst ef keyptar eru þrjár bækur eða fleiri.

Hér er mynd af kápunni í heild sinni: