O R Ð L I S T

Steinunn Ásmundsdóttir (ljósm. Valgarður Gíslason)

ORÐLIST er vefur Steinunnar Ásmundsdóttur, rithöfundar, ljóðskálds og blaðamanns.

Velkomin á Orðlist.is!

Ég stofnaði til vefsins árið 2016 (þá undir nafninu Yrkir) og nýti hann til að halda utan um og birta talsvert af höfundarverki mínu. Það innifelur einkum ljóð og sögur; ýmist þegar útgefið eða áður óbirt efni, þýðingar, ýmsar greinar og umfjallanir, hugleiðingar, minningargreinar og jafnvel drauma …

Sjá nánar í efnisyfirliti efst t.v.

.

Ljóðin eru hér í hundraðavís, flokkuð eftir prentuðum bókum og efnistökum, birt eru óprentuð ljóð, þýðingar þeirra og þýðingar mínar á ljóðum annarra, auk nýskapaðra og alveg hrárra ljóða sem ég hef gaman af að hengja út á þvottasnúru alheimsins og láta aðeins taka sig áður en þau fara í frekara snikk. Sögur eru skáldsögur og sannsögur (creative nonfiction), smásögur og frásögur, ýmist prentaðar eða óprentaðar, sem hljóðbækur (audio) eða rafbækur (e-book). Í Safnrit setti ég ljóð mín sem birst hafa í safnritum ýmsum. Undir Media er umfjöllun fjölmiðla um bækur mínar og auk þess eru þar hugleiðingar ýmsar og skrif mín í fjölmiðla, tímarit og bækur gegnum tíðina, bæði úr blaðamennskutíð og persónulega. Info er alls konar upplýsingar: um höfundinn, umfjallanir fólks og fjölmiðla um verk mín, hvað er á döfinni hjá mér og hitt og þetta annað. O.fl.

.

BLOGG:

Ný bók í vinnslu

Nú er í vinnslu bók um náttúrufræðinginn Helga Hallgrímsson. Hún kemur út hjá Skruddu vorið 2025 ef allt gengur að óskum en þá verður Helgi níræður. Skrudda hefur einmitt gefið út stórbækur Helga, svo sem; Lagarfljót, mesta vatnsfall Íslands; Sveppabókin, íslenskir sveppir og sveppafræði og Fljótsdæla, mannlíf og náttúrufar í Fljótsdalshreppi. Væntanleg er einnig næsta…

NÝTT NAFN – SAMI VEFUR

Kæri lesandi.Hugverkavefur minn og hugverkaútgáfa heita nú ORÐLIST og eru á vefslóðinni orðlist.is og ordlist.is.Ég hef sumsé selt lén mitt Yrkir (stofnað 2016) í kjölfar þess að eftir því var falast, enda núorðið til yrki, yrkja, yrkjusjóður, yrkill, yrkið, yrkjur o.s.fr. og Yrkir minn því orðinn nokkuð innikróaður. Velkomin á ORÐLIST! Kær kveðja,Steinunn .

.

.

Ég opna hjarta mitt,
þetta innmúraða búr ljóða minna
og sendi þau eins og fugla
út meðal fólksins –
veit að sum þeirra
eiga í vök að verjast
eins og snjótittlingarnir
í hvítu kófi janúarbyljanna.
Önnur skipta sér niður á bæina
eins og hrafninn.

Matthías Johannessen, Sálmar á atómöld, 1966



Tibi ipsi estu fideles!