Unnið hörðum höndum að Helgabók

Nú hef ég verið búsett í Frakklandi í tvo mánuði og þrátt fyrir að það sé stuttur tími hefur margt áunnist. M.a. tók ég upp þráðinn þar sem frá var horfið í vinnu að bók um Helga Hallgrímsson náttúrufræðing; sögu hans og sýnisbók, og er verkið það langt komið að óhætt virðist að ákvarða að bókin komi út næsta vor, 2027.
Fyrir þá sem ekki vita, tók ég upp á því að gifta mig aftur, fimmtíu og níu ára gömul, frönskum manni sem ég kynntist fyrir fjörutíu árum í Reykjavík, í tengslum við leiðtogafund Gorbachevs og Reagans í Höfða í október 1986. Nú lifi ég góðu lífi í sveit í Suður-Frakklandi og uni mér ákaflega vel, laus við hið íslenska brauðstrit og bankalánahlekki. Nú lifi ég, og nú skrifa ég!

Færðu inn athugasemd