Þegar maður er á miðjum aldri gerist það skrítna: unnt er að horfa bæði fram á veginn og aftur á bak til fortíðar og hægt að láta sér dveljast beggja vegna. Þetta er ljómandi skemmtilegt og margt að hugsa.
Var að gramsa í myndum og rakst á þessar frá útgáfuhófi ljóðabókarinnar Dísyrða árið 1992, það var haldið í Djúpinu (nema hvað) með góðum gestum. Charles Egill Hirt heitinn tók myndirnar og Dan Cassidy var svo elskulegur að spila á fiðluna sína í veislunni. Svo voru alls konar ræður og upplestrar, m.a. stigu á stokk skáldið góða Jón frá Pálmholti, Gísli Sigurðsson Lesbókarstjóri og Brynjar Viborg útgefandi.
Hér eru nokkrar mynda Kalla úr partíinu:









.

Yndislegar myndir hér elsku vinkona, sérstaklega myndin af þér og foreldra þinum
Líkar viðLíkar við